09. september 2010 11:34
Kristjana Birgisdóttir hefur verið ráðin í verðlagseftirlit ASÍ. Hún er tæknifræðingur frá D.T.U. í Kaupmannahöfn. Áður starfaði hún við gæða- og öryggismál hjá Ístaki, þar á undan við gæðamál hjá BSI á Íslandi. Hún hóf störf 16. ágúst.
Nýr starfsmaður Félagsmálaskóla alþýðu
Sigurlaug Gröndal hefur verið ráðin til Félagsmálaskóla alþýðu. Áður starfaði hún hjá Mími – símenntun ehf., en þar sá hún um skipulag og kennslu á trúnaðarmannanámskeiðum skólans.
Engin breyting verður á formi trúnaðarmannafræðslunnar og mun Sigurlaug áfram sjá um allt er viðkemur henni. Hún hóf störf þann 1. ágúst.
Til baka