Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
13. ágúst 2010 15:49

Vegna verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

Að gefnu tilefni tekur Alþýðusamband Íslands fram að verkfallsrétturinn er grundvallarréttur hvers stéttarfélags og óheimilt er lögum samkvæmt að brjóta eða komast hjá löglega boðuðum vinnustöðvunum.

Alþýðusambandið átelur aðgerðir Isavia og Flugfélags Íslands, sem felast í flutningi farþegaflugs frá Akureyri til Húsavíkurflugvallar, sem eru eingöngu settar fram í því skyni að komast hjá löglega boðuðu verkfalli og hafa þar með óeðlileg áhrif á gang mála. Slíkar aðgerðir fara gegn þeim grundvallarrétti stéttarfélaga sem felst í því að semja um kaup sín og kjör og beita lögmætum aðgerðum í því skyni.



Til baka


Fréttalisti


Gengislækkun

veldur því að erlendur gjaldeyrir verður dýrari í íslenskum...