Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. júní 2010 10:33

Takmörkuð réttindi launafólks í Kína

Deilur og átök á kínverskum vinnumarkaði fjölgaði mikið á síðasta ári samkvæmt skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC).  Þrátt fyrir nýlega vinnulöggjöf er kínverskum launamönnum enn bannað að mynda hagsmunasamtök og þeir sem að krefjast bættra kjara eiga á hættu að vera fangelsaðir.  Verkfallsrétturinn var felldur úr kínversku stjórnarskránni árið 1982.

Í skýrslu ITUC fyrir árið 2009 kemur fram að þrátt fyrir ýmsar umbætur á undanförnum árum standist kínversk vinnulöggjöf langt því frá samnaburð við það sem þekkist á alþjóðavettvangi.  Í Kína er ekkert raunverulegt félagafrelsi og aðeins eitt viðurkennt samband launamanna er í landinu. Kjarasamningar eins og tíðkast t.d. hér á landi þekkjast ekki í Kína.

Hægt er að nálgast kaflann um Kína í skýrslu ITUC með því að smella hér.

Til baka