Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. maí 2010 13:50

Ákall ASÍ til stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins um víðtækt samstarf

Forseti ASÍ hefur sent áskorun til samtaka launafólks, samtaka atvinnurekenda og stjórnmálaflokkana um að koma að borðinu til að ræða tillögur ASÍ í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum.  Hugmyndin er að nota fyrirsjáanlega aukin umsvif í hagkerfinu í sumar sem stökkbretti inn í komandi vetur.  Til þess að þetta gangi upp þarf að grípa til umfangsmikilla aðgerða á allra næstu vikum.

Alþýðusambandið hefur sett fram hugmyndir um umfangsmikla aðgerðaáætlun til þess að koma hjólum atvinnulífsins í gang.  Lykilatriði þessarar áætlunar er stórátak í atvinnumálum með tilliti til framkvæmda og stóriðju, skilvirkar aðgerðir í greiðslu- og skuldavanda heimilanna, aukin virkni og þjónusta í vinnumarkaðsmálum, jöfnun lífeyrisréttinda, jöfnuð í afkomu ríkissjóðs, samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og stjórnsýslu og aðgerðir í gengis-, vaxta- og peningamálum til að styrkja gengi krónunnar og lækka verðlag.

Aðgerðaráætlunina má lesa í heild sinni hér.

Bréf forseta ASÍ má lesa hér.



Til baka


Fréttalisti


Kaupmáttur launa

er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...