Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. mars 2010 14:38

ITUC fordæmir áform Ísraelsstjórnar um nýjar landnemabyggðir

Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur fordæmt áform Ísraelsstjórnar um að heimila byggingu 1600 íbúða á palestínsku landi nærri Jerúsalem.  Þetta gerist aðeins tveimur dögum eftir stjórnvöld í Palestínu sögðu sig reiðubúin að hefja á ný viðræður við Ísrael með milligöngu Bandaríkjamanna.

Guy Ryder framkvæmdastjóri ITUC segir í tilkynningu að ákvörðun Ísraelsstjórnar sé mikið áfall. Sérstaklega í ljósi yfirlýsingar Palestínumanna um vilja til að koma friðarviðræðum á svæðinu aftur á rekspöl.  Ban Ki-moon framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur einnig gagnrýnt Ísraela harðlega fyrir ákvörðun sína.

Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...