Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. mars 2010 15:38

Atvinnuleysi eykst

Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun í febrúar var 9,3% sem jafngildir því að 15.026 manns hafi að meðaltali verið án atvinnu í mánuðinum. Atvinnulausum fjölgaði að meðaltali um 321 frá því í janúar. Tæplega 7.900 manns hafa nú verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur, eða tæplega helmingur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þeim sem verið hafa án atvinnu í eitt ár eða lengur fjölgar nú hratt voru 4.005 manns í janúar en 4.365 í febrúar og eru nú ríflega fjórðungur allra atvinnulausra.

Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum þar sem 15% mannaflans er án atvinnu eða ríflega 1.600 manns og á höfuðborgarsvæðinu þar sem ríflega 10.200 manns eru án atvinnu eða 9,9% mannaflans. Minnst atvinnuleysi er á Vestfjörðum þar sem 134 eru án atvinnu eða 3,6%.

Ríflega 3.000 manns á aldrinum 16-24 ára voru atvinnulaus í lok febrúar og voru tæplega fimmtungur atvinnulausra í þessum aldurshópi. Samkvæmt tölum um fjölda atvinnulausra í lok febrúarmánaðar voru samtals 16.574 manns á atvinnuleysisskrá og þar af voru 2.674 í hlutastörfum. 2.196 manns voru skráðir til þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum hjá Vinnumálastofnun í febrúar, eða um 13% atvinnulausra.



Til baka


Fréttalisti


Aðalkjarasamningur

er heiti sem notað er um kjarasamninga milli...