Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. mars 2010 12:57

Skipulagsmál - fundarferð ASÍ um landið

Undanfarnar vikur hefur hópur starfsmanna á skrifstofu ASÍ farið um landið og átt fundi með fulltrúum úr stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem rætt hefur verið um skipulag Alþýðusambandsins.  Fundaröðin hófst í Reykjavík 10. febrúar og líkur á Selfossi þann 23. mars.

Markmið fundanna er að fá fram með skipulögðum hætti viðhorf og væntingar í hreyfingunni til uppbyggingar og skipulags verkalýðshreyfingarinnar.  Síðan verður unnið með þær hugmyndir sem koma fram á þessum fundum í þar til gerðum nefndum og miðstjórn áður en tillögur sem sátt næst um verða lagðar fyrir ársfund ASÍ 2010 í október.

Fundirnir hafa allstaðar gengið vel og mæting víðast hvar verið góð.  Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr ferðunum.

 

Vösk sveit frá Þórshöfn mætti á fundinn á Húsavík

Mætingin á skipulagsfundinn á Húsavík var með besta móti.

 

Fundarmenn í Varmahlíð í Skagafirði greiða hugmyndum atkvæði.

Frá fundinum í Borgarnesi.

Starfsmenn ASÍ ánægðir að loknum vel heppnuðum fundi á Húsavík.  Á fundunum er notast er við svokallað miðlunaraðferð (líkt og á þjóðfundinum fyrr í vetur) þar sem unnið er í 7 hópum með hópstjóra á hverju borði.



Til baka


Fréttalisti


Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...