10. mars 2010 12:57
Undanfarnar vikur hefur hópur starfsmanna á skrifstofu ASÍ farið um landið og átt fundi með fulltrúum úr stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem rætt hefur verið um skipulag Alþýðusambandsins. Fundaröðin hófst í Reykjavík 10. febrúar og líkur á Selfossi þann 23. mars.
Markmið fundanna er að fá fram með skipulögðum hætti viðhorf og væntingar í hreyfingunni til uppbyggingar og skipulags verkalýðshreyfingarinnar. Síðan verður unnið með þær hugmyndir sem koma fram á þessum fundum í þar til gerðum nefndum og miðstjórn áður en tillögur sem sátt næst um verða lagðar fyrir ársfund ASÍ 2010 í október.
Fundirnir hafa allstaðar gengið vel og mæting víðast hvar verið góð. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr ferðunum.
Vösk sveit frá Þórshöfn mætti á fundinn á Húsavík

Mætingin á skipulagsfundinn á Húsavík var með besta móti.

Fundarmenn í Varmahlíð í Skagafirði greiða hugmyndum atkvæði.

Frá fundinum í Borgarnesi.

Starfsmenn ASÍ ánægðir að loknum vel heppnuðum fundi á Húsavík. Á fundunum er notast er við svokallað miðlunaraðferð (líkt og á þjóðfundinum fyrr í vetur) þar sem unnið er í 7 hópum með hópstjóra á hverju borði.
Til baka