Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. mars 2010 10:44

Vantrausti lýst á þá þingmenn sem spila á efnahagserfiðleika þjóðarinnar sjálfum sér til framdráttar

Miðstjórn Samiðnar samþykkt á fundi sínum í gær harðorða ályktun um stöðu efnahagsmála.  Þar segir m.a. að sundrung á Alþingi sýni að Stöðugleikasáttmálinn sé ekki tekinn alvarlega.  Þolinmæðin sé á þrotum og ef engin raunhæf úrræði koma fram á næstu vikum stefnum við hraðbyri að næsta hruni. Ljóst sé að Alþingi hafi ekki valdið hlutverki sínu, hvorki stjórn né stjórnarandstaða.

Ályktunin í heild sinni hljóðar svona:

"Miðstjórn Samiðnar lýsir miklum vonbrigðum með þróun efnahagsmála, aðgerðarleysi stjórnvalda og þá stöðnun sem við blasir hvarvetna í íslensku samfélagi. Miðstjórnin lýsir fullri ábyrgð á hendur Alþingi sem hefur ekki valdið sínu hlutverki hvorki stjórn né stjórnarandstaða. Miðstjórnin skorar á alþingismenn að láta hagsmuni fólksins í landinu ganga fyrir og lýsi vantrausti á þá alþingismenn sem spila á efnahagserfiðleika þjóðarinnar sér til framdráttar. Ef ekki næst samstaða á Alþingi á næstu dögum um markvissar aðgerðir til að bregðast við vaxandi erfiðleikum fjölskyldna og fyrirtækja þá verður að stokka upp á nýtt.
Með stöðugleikasáttmálanum lýstu stéttarfélögin og samtök atvinnurekenda því yfir að þau væri reiðubúin að vinna með stjórnvöldum að nýrri sókn í atvinnumálum. Aðgerðaleysi og sundrung á Alþingi  staðfestir  að sáttmálinn er ekki tekinn alvarlega.                               
Miðstjórnin beinir því til stéttarfélagana í landinu að þau fari að huga að því hvernig hægt sé að knýja fram raunhæfar aðgerðir sem leitt geti þjóðina út úr þeim vanda sem hún er í. Þolinmæðin er á þrotum, tíminn er að renna frá okkur og ef engin raunhæf úrræði koma fram á næstu vikum stefnum við hraðbyri að næsta hruni.
Íslendingar  eiga möguleika á  að koma í veg fyrir nýtt hrun og því kallar miðstjórn Samiðnar eftir samstöðu með öllum þeim sem vilja byggja upp Ísland,  þar sem allir eiga tækifæri, þar sem sameiginlegir hagsmunir eru settir fram fyrir sérhagsmuni, þar sem allir eru látnir axla ábyrgð á gerðum sínum."



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...