Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
24. febrúar 2010 09:57

Verðbólga hækkar í 7,3%

Verðlag hækkaði um 1,15% í febrúar samkvæmt nýrri mælingu á vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands birti í morgun og er verðbólga á ársgrundvelli nú 7,3%. Sé húsnæði undanskilið úr vísitölunni hefur verðlag hækkað um 11% á liðnu ári.

Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni nú hefur hækkun á húsgögnum og ýmsum heimilisbúnaði sem hækkaði um 4,8% frá fyrra mánuði og hefur 0,37% áhrif til hækkunar á vísitölunni. Auk þess hækkar verðlag á fötum og skóm um 3,9% sem hefur 0,22% vísitöluáhrif. Þessar hækkanir má að líkindum rekja að mestu til útsöluloka en þessir liðir lækkuðu báðir nokkuð í janúarmánuði.

Af öðrum liðum má nefna að verð á mat og drykkjarvöru hækkar um 0,5% á milli mánaða sem hefur 0,07% áhrif til hækkunar á vísitölunni. Mest ber á hækkunum á brauði og kornvörum, fiski og grænmeti en lækkana gætir á ávöxtum og drykkjarvörum. Þá hækka ferðir og flutningar um 1,4% frá fyrra mánuði sem er að mestu til komið vegna hækkunar á bensíni og olíu og flutningskostnaði. Þess ber þó að geta að hækkanir á bensínverði undanfarna daga eru ekki hluti af þessari hækkun.

Húsnæðisliður vísitölunnar breytist minna nú en undanfarna mánuði. Litlar sem engar breytingar mælast á húsnæðisverði frá fyrra mánuði en kostanaður vegna viðhalds og viðgerða hækkar um 1,2% (0,06% vísitöluáhrif) og rafmagn og hiti hækka um 1% (0,03% áhrif).



Til baka


Fréttalisti


Gengisvísitala

mælir breytingar á verði gjaldmiðils...