11. febrúar 2010 13:23
22% verðmunur reyndist á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslununum sl. þriðjudag. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 14.736 en dýrust í Kosti kr. 17.920, verðmunurinn er 3.184 krónur. Aðeins 111 kr. verðmunur var á körfunni í Krónunni og Nettó.

Vörukarfan samanstendur af 41 almennri neysluvöru til heimilisins ss. mjólkurvörum, osti, brauði, morgunkorni, grænmeti, kjöti, fiski, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat ofl.
Mestur verðmunur í könnuninni var á nautahakki 8 – 12% sem var dýrast 1.659 kr/kg í Kosti, en ódýrast. 799 kr/kg í Krónunni verðmunurinn er 860 kr/kg eða tæplega 108%. Ferskar kjúklingabringur voru dýrastar í Nettó 2.941 kr/kg og ódýrastar í Bónus 1.598 kr/kg, munurinn er 1.343 kr/kg eða 84%.
Af einstaka liðum í könnuninni var minnstur verðmunur á viðbiti, mjókurvörum og sykruðum drykkjarvörum.
Mikill verðmunur var á ódýrasta kílóverði af spagetti sem kostaði 195 kr í Bónus, en var dýrast á 378 kr í Kosti, verðmunurinn er tæp 94%. Verðmunur á grænmeti og ávöxtum var einnig mikill, ódýrustu rauðu eplin kostuðu 198 kg/kg í Nettó en voru dýrust 329 kr/kg í Krónunni, verðmunurinn er 66%. Ódýrasta kínakálið kostaði 178 kg/kg í Bónus, en dýrasta var það á 275 kr/kg í Kosti, verðmunurinn er 54,5%.
Mikill verðmunur var einnig á vanillu ís, sem kostaði 194 kr. lítrinn í Krónunni en var dýrastur í Nettó 319 kr. lítrinn, verðmunurinn er 64,4%.
Heilveitibrauð var ódýrast í Bónus 198 kr/kg en dýrast í Krónunni 209 kr/kg sem er tæplega 37% verðmunur. Lægsta kílóverðið á Kellog‘s kornflögum var í Bónus 698 kr/kg en hæsta verðið var í Kosti 998 kr/kg, sem er 43% verðmunur.
Sjá nánar í töflu.
Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð mælieiningaverð vara, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum.
Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum; Bónus Holtagörðum, Krónunni Lindum, Nettó Hverafold og Kosti Dalvegi.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.
Til baka