Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. febrúar 2010 13:08

Fjölbreytt dagskrá í Listasafni ASÍ á safnanótt

Fjölbreytt dagskrá verður í Listasafni ASÍ á safnanótt 12. febrúar.  Guðrún Gunnarsdóttir og Guðmundur Ingólfsson fjalla um sýningar sínar Að muna sinn fífil fegurri og Heimild um horfinn tíma sem eru nú uppi í safninu og tríó Vadim Fyodorov leikur franska drauma fyrir harmónikku, gítar og kontrabassa.

19:00 -24:00

Að muna sinn fífil fegurri

Guðrún Gunnarsdóttir Horft er á fíflana frá ýmsum sjónarhornum og unnið með ýmiss konar tækni í margvísleg efni svo sem útsaum, plöstun, vír, pappírsklipp og annað. Á sýningunni er ekki verið að endurgera fífla, heldur að miðla upplifun á formi og litum fíflanna út frá skapandi vinnu. Fífillinn kemur upp á vorin sprækur og kátur með sínum heiðgulu blómum sem verða síðan að biðukollum sem svífa dreymandi um loftin blá. Fífillinn leggst í dvala síðsumars og er með fyrstu vorboðum okkar Íslendinga.
Sýningin er tileinkuð Íslendingum með óskum um bjarta framtíð.

 

19:00 - 24:00

Heimild um horfinn tíma.

Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari (fæddur 1946) hlaut menntun sína í Þýskalandi á árunum 1968-71, en hefur sarfað á egin vegum í Reykjavík frá 1972. Myndirnar sem hann sýnir í Listafani ASÍ í boði Guðrúnar Gunnarsdótttur eru ú syrpu ljósmynda af rýmum sem hann hefur ljósmyndað frá árinu 1993, flestar úr lýsis- eða olíutönkum frá ýmsum stöðum á landinu

 

19:30 & 21:00 & 23:00

Listamannaspjall

Listamannaspjall. Guðrún Gunnarsdóttir og Guðmundur Ingólfsson fjalla um sýningar sínar Að muna sinn fífil fegurri og Heimild um horfinn tíma.

 

 

20:30 & 22:00

Tríó Vadim Fyodorov. Franskir draumar fyrir harmónikku, gítar og kontrabassa

Tríóið er nefnt eftir upphafsmanni þess, rússneska harmónikkusnillingnum Vadim Fydorov. Hljómsveitin leikur franska musett- og jazz tónlist í hefðbundinni franskri hljómsveit þ.e.a.s. harmónikka, kontrabassi og gítar. Auk Vadims skipa hljómsveitina Gunnar Hilmarsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Vadim er fæddur í Pétursborg í Rússlandi árið 1969. Hann byrjaði að læra á nikkuna aðeins 6 ára gamall og stundaði framhaldsnám í Rússlandi og Þýskalandi. Vadim hefur verið búsettur á Íslandi í nær áratug og er án efa einn fremsti starfandi harmónikkuleikari á Íslandi.



Til baka


Fréttalisti


Dráttarvextir

eru refsivextir sem innheimtir eru ef krafa...