02. febrúar 2010 15:20
Þeim sem hafa misst vinnuna og eru að leita fyrir sér með vinnu í útlöndum hefur fækkað um 5 prósentustig síðan sl. sumar. Þeim fækkar einnig í hópi atvinnulausra sem stefna að því að fara í nám. Að sama skapi fjölgar þeim umtalsvert sem eru atvinnulausir en eru að leita sér að vinnu hérlendis. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði á högum almennings vegna efnahagsþrenginganna fyrir ASÍ.
Þegar þeir sem þegar eru atvinnulausir voru spurðir hvort þeir væru að leita sér að vinnu á Íslandi eða erlendis eða hvort viðkomandi stefni að því að fara í nám var niðurstaðan sú að 80% eru að leita sér að vinnu hérlendis, 24% stefna að því að fara í nám en 19% eru að leita sér að vinnu í útlöndum. Í þessari spurningu mátti nefna fleiri en einn svarmöguleika. Þessar tölur eru nokkuð frábrugðnar þeim sem að sáust í sambærilegri könnun í júní 2009 en þá sögðust 65% vera að leita sér að vinnu hér á landi, 29% stefndu þá á nám og 24% voru að leita sér að vinnu erlendis. Sjá nánar hér.
Þeir sem eru í launaðri vinnu voru spurðir eftirfarandi spurningar: Ef þú yrðir atvinnulaus, hvað telur þú líklegast að þú tækir þér fyrir hendur? 62% sögðust myndu leita sér að vinnu á Íslandi, 28% myndu leita að vinnu í útlöndum, 22% færu í nám og 12% myndu sækja námskeið eða starfsþjálfun til að auka færni sína. Þegar upplýsingar á bak við þessar tölur eru skoðaðar kemur í ljós að helmingi fleiri karlar en konur myndu leita sér að vinnu í útlöndum. Háskólamenntað fólk myndi einnig leita út fyrir landsteina umfram aðra hópa og íbúar úti á landi myndu síður leita að vinnu erlendis en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Sjá nánar hér.
Capacent-Gallup kerði könnunina fyrir Alþýðusamband Íslands 14.-28. desember 2009.Um net- og símakönnun var að ræða. Úrtakið var 1184 manns, 18-75 ára, af öllu landinu.Svarhlutfall var 60,8%.
Til baka