01. febrúar 2010 15:20
Ríkisstjórnin þarf að gera meira til að mæta greiðsluvanda heimilanna segja 91% aðspurðra í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ. Könnunin sýnir samdrátt í neyslu heimilanna á flestum sviðum.
Óánægjan með takmarkaðar aðgerðir eða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar vegna greiðsluvanda heimilanna er mikil ef marka má niðurstöðurnar. Níu af hverjum tíu segir ekki nóg gert. Þetta er nánast sama niðurstaða og í júní 2009 þrátt fyrir að félagsmálaráðherra hafi sett greiðslujöfnun á öll húsnæðislán í skilum í desember sl. og fjármálastofnanir hafi boðið upp á ýmis úrræði fyrir einstaklinga í fjárhagsvanda í haust. Óánægjan er meiri meðal kvenna en karla og áberandi mikil meðal þeirra sem misst hafa vinnuna. Þegar spurt var hvað stjórnvöld eigi að gera meira en þau hafa nú þegar gert til að mæta greiðsluvanda heimilanna nefndu langflestir niðurfellingu skulda eða lækkun höfuðstóls.13% nefndu aðgerðir til að koma til móts við fólk með síhækkandi húsnæðislán og 12% afnám verðtryggingar. Langflest svörin snéru þannig að lækkun eða leiðréttingu fasteignalána. Sjá nánar hér.
Þegar spurt var hvort fólk hafi dregið úr útgjöldum heimilisins kom í ljós að flestir hafa dregið veruleg úr útgjöldum til ferðalaga, tækja- og fatakaupa. Athygli vekur hversu margir hafa dregið úr útgjöldum til matarinnkaupa og eldsneytiskaupa en þessir liðir vega nú sífellt þyngra í heimilisbókhaldinu. Sjá nánar
hér.
Til baka