28. janúar 2010 14:22
Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í desember síðastliðnum kemur fram að 16,7% þjóðarinnar telur sig þurfa á sérstökum úrræðum að halda til að geta staðið í skilum á greiðslum vegna lána. Af þeim fjölda sem hefur leitað sér aðstoðar hafa 83% ekki fengið fullnægjandi úrlausn mála að eigin mati. Með öðrum orðum þá fá stjórnvöld og bankastofnanir falleinkunn þegar kemur að aðstoð við skuldsett heimili í landinu.
Fjöldi þeirra sem hafa þurft á sérstökum úrræðum að halda til að geta greitt af lánum sínum hefur lækkað lítillega síðan í sambærilegri könnun sem ASÍ lét gera í júní 2009. Þá svöruðu 18,7% spurningunni játandi en 16,7% núna. Það er jákvæð þróun og góðu tíðindin eru að sjálfsögðu þau að rúmlega 80% þjóðarinnar er í það góðri stöðu að þurfa ekki að nýta sér þessi úrræði. Það eru samt 37 þúsund Íslendingar sem telja sig þurfa aðstoð til að geta staðið í skilum með sín lán.
Af þeim sem telja sig í vanda núna hafa 87% nýtt sér úrræði sem í boði eru en sambærileg tala frá því í vor er 70%. Í hópi þeirra sem hafa metið stöðu sína slæma hefur þeim sem sagt fjölgað mikið sem hafa stigið skrefið og leitað sér aðstoðar. Ein skýring á því er að úrræðunum sem í boði eru, fjölgaði töluvert á seinni hluta síðasta árs. Flestir nýttu sér greiðslujöfnun (sem var sett á öll íbúðarlán í skilum í des 2009) eða 38%, álíka fjöldi hafði fengið frystingu á lán sín, 16% höfðu lengt í lánum og 12% farið í greiðsluaðlögun. Það vekur athygli að 50% kvenna hefur látið frysta lán sín en aðeins 22% karlmanna, þá er frysting lána algeng hjá aldurshópnum 18-24 ára.
Mest sláandi niðurstöður könnunarinnar eru hins vegar þær að 83% þeirra sem hafa nýtt sér þau úrræði sem í boði eru hafa ekki fengið viðeigandi úrlausn sinna mála. Þetta hlutfall ósáttra hefur hækkað um 20 prósentustig frá því í könnuninni í júní 2009.
Capacent-Gallup kerði könnunina fyrir Alþýðusamband Íslands 14.-28. desember 2009.Um net- og símakönnun var að ræða.Úrtakið var 1184 manns, 18-75 ára, af öllu landinu.Svarhlutfall var 60,8%.
Til baka