Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
27. janúar 2010 10:55

Stýrivextir í 9,5% - hefði viljað meiri lækkun segir forseti ASÍ

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti úr 10% í 9,5% í morgun.  Þeir hafa ekki verið lægri í 5 ár.  Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segist hafa viljað sjá meiri lækkun nú þegar verðbólgan er á niðurleið. "Ég fagna þróuninni en tel að það hafi verið svigrúm nú fyrir stærri skref í lækkunarferlinu.  Það er ljóst að hátt vaxtastig er að framkalla samdrátt og aukið atvinnuleysi og við því verður að bregaðst", segir Gylfi.

Til baka


Fréttalisti


Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.