Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
18. nóvember 2009 23:00

Umsamdar launahækkanir hafðar af launafólki

Á fundi miðstjórnar í dag kom fram hörð gagnrýni á, að einstaka fyrirtæki innan raða SA séu að þvinga starfsmenn sína til þess að falla frá þeim umsömdu launahækkunum, sem koma eiga til framkvæmda frá 1. nóvember. Almennt launafólk hefur undanfarna mánuði sýnt atvinnulífinu mikinn skilning á erfiðri stöðu fyrirtækjanna og í reynd axlað mikla ábyrgð á stöðu efnahagsmála með því að fresta umsömdum launahækkunum bæði á þessu ári og því næsta um sex til átta mánuði. Það er því algerlega óviðunandi að einstaka fyrirtæki þakki fyrir sig með því að þvinga fólk til að afsali sér þessum hækkunum í skjóli óbeinna hótanna um atvinnumissi. Miðstjórn ASÍ krefst þess að frá þessu verði fallið og tryggt verði að allir félagsmenn njóti þeirra hækkana sem um var samið í kjarasamningunum í febrúar 2008.

Til baka


Fréttalisti


Aðilaskipti að fyrirtækjum

eða hluta þess fela það í sér að nýr aðili...