Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
28. maí 2009 15:03

Parísaryfirlýsing Evrópusambands verkalýðsfélaga

Í dag lauk í París tveggja daga fundi allra helstu verkalýðsleiðtoga Evrópu.  Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sat fundinn fyrir hönd íslensku verkalýðshreyfingarinnar.  Ræddu leiðtogarnir efnahagskreppuna og mögulegar leiðir út úr vandanum.  Á fundinum var samþykkt svokölluð Parísayfirlýsing sem er í fimm liðum.  Markmið hennar er annars vegar að berjast gegn kreppunni og hins vegar að stuðla að uppbyggingu réttlátar þjóðfélags í Evrópu. 

Fimm áhersluatriði yfirlýsingarinnar eru þessi:

·  Fleiri og tryggari störf: - fjármunir lagðir í umfangsmikla evrópska endurreisnaráætlun

·  Öflugra velferðarkerfi til að efla öryggi og jöfnuð þegnanna og hindra félagslega einangrun

·  Betri réttindi fólks á vinnumarkaði

·  Öflugri kjarasamninga sem að treysta kjör launafólks

·  Öfluga evrópska samstöðu gegn óheftum kapítalisma eins og þeim sem olli fjármálakreppunni



Til baka