Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. maí 2009 10:19

Jákvæður fundur um stöðugleikasáttmála

Fundur aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa sveitarfélaga með stjórnvöldum sem haldinn var í gær var jákvæður að sögn forseta Alþýðusambandsins.  Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði mikla áherslu á náið samráð í þessu ferli og bauð m.a. reglulega fundi með þeim Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra til að samræma viðbrögð og viðræður.  Á fundinum lögðu aðilar fram lista yfir þau atriði sem óskað er eftir að tekin verði til umræðu.

"Við lögðum jafnframt áherslu á að fá fulltrúa annað hvort þingflokka stjórnarflokkana eða nána samstarfsaðila til að setjast að viðræðum með okkur til þess að freista þess að finna sameiginlegar lausnir á þeim vanda sem við er að glíma. Slíkt vinnulag var viðhaft á árunum 1990-1993 þegar við vorum að komast í gegnum þjóðarsáttarsamninganna", sagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.



Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...