13. maí 2009 15:31
Í apríl og það sem af er maí hafa 5 verkalýðsfrömuðir verið myrtir í Kólumbíu. Þetta eru menn sem hafa verið að berjast fyrir sjálfsögðum réttindum launafólks í landinu. Þar með hafa 17 baráttumenn fyrir réttindum verkafólks verið myrtir í Kólumbíu á þessu ári.
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur ásamt þremur verkalýðssamböndum í Kólumbíu fordæmt ofsóknir og árásir á hendur verkalýðsfélögum og starfsmönnum þeirra. Réttindi verkafólks eru bágborin í landinu og hafa stjórnvöld dregið lappirnar í umbótastarfi sínu. ITUC skorar á stjórnvöld í Kólumbíu að gera strax réttarbót í málefnum launafólks og draga þá þegar til ábyrgðar sem bera ábyrgð á morðum og ofsóknum á hendur verkalýðsforystunni. Réttindi á vinnumarkaði eru víðast talin hluti af sjálfsögðum mannréttindum í dag. Á það viðhorf skortir mjög í Kólumbíu.
Til baka