12. maí 2009 13:51
Myndlistamaðurinn Þóra Sigurðardóttir verður með listamannaspjall í Listasafni ASÍ sunnudaginn 17. maí kl. 15:00. Verk Þóru fjalla um gólf og veggi húss; snertingu við rými og tíma, hreyfingu og kyrrstöðu.
Þóra Sigurðardóttir
Texti, teikningar og grafík
Verkin fjalla um gólf og veggi húss; snertingu við rými og tíma, hreyfingu og kyrrstöðu. Þóra Sigurðardóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Ísland og framhaldsnám við Det Jyske Kunstakademi Danmörku. Þóra hefur tekið þátt í samsýningum og sýnt verk sín á einkasýningum hér heima og erlendis um árabil. Verk Þóru eru í eigu einkasafna og opinberra safna s.s. Listasafns Íslands, Listasafns ASÍ auk safna á norðurlöndum.
Jafnframt myndlistinni hefur Þóra unnið við listkennslu, skólastjórn, verkefna- og sýningarstjórn og unnið teikningar fyrir bækur og tímarit. Sjá nánar á: www.this.is/thora www.nyp.is
Sólrún Sumarliðadóttir
Hljómrými í gryfju; potthljóð
Verkið er unnið út frá leik með mjóa vatnsbunu í potti og þeim yfir- og undirtónum sem þá myndast, dropatali, málmi, gleri og fingurgómum. Sólrún Sumarliðadóttir stundaði nám í sellóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Maastricht Conservatory í Hollandi, lauk BA gráðu í tónvísindum frá háskólanum í Utrecht og MA gráðu í menningarfræðum frá Goldsmiths College í London árið 2006. Sólrún er meðlimur hljómsveitarinnar Amiinu og hefur þannig um árabil samið tónlist, unnið hljóritanir og komið fram á tónleikum og listahátíðum víða um heim, auk þess að starfa reglulega með öðrum tónlistarmönnum, íslenskum sem erlendum. Sjá nánar á: www.amiina.com
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 17 og aðgangur er ókeypis.
Til baka