08. maí 2009 09:02
Í dag klukkan 13 verður efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Frá Austurvelli verður síðan gengið að Stjórnarráðinu. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin.
Í tilkynningu frá samtökunum Nýir tímar segir m.a.: "Við viljum minna stjórnvöld á að heimili landsmanna eru að brenna upp í skuldum og að sú “Skjaldborg” sem slá átti um hemilin sé hvergi sjáanleg.
Almenningur í landinu hefur þurft að sýna ótakmarkaða þolinmæði gagnvart stjórnvöldum sem á móti sýna landsmönnum enga vægð þegar að innheimtuaðgerðir eru annars vegar."
Til baka