07. maí 2009 12:31
Vaxtalækkun Seðlabankans í dag er í engum samræmi við væntingar sem komu fram í ályktun miðstjórnar ASÍ um vaxtamál í gær. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir mikil vonbrigði að Seðlabankinn skuli halda fast í þá stefnu að lækka vexti í smáum skrefum.
"Eins og ályktun miðstjórnar ASÍ frá í gær ber með sér þá óttast ég að heimili og fyrirtæki í landinu geti einfaldlega ekki staðið undir þessum háu vöxtum. Við hittum seðlabankastjóra í morgun og áttum hreinskiptar umræður um þessi mál. Hann sagði það ætlun bankans að lækka vexti umtalsvert á næstu 2-4 mánuðum og auðvitað er mikil von í því fólgin. Á þessum fundi var ákveðið að setja á laggirnar vinnuhóp þar sem í eiga sæti fulltrúar ASÍ, SA og Seðlabankans til að greina stöðuna og fara yfir málin á hverjum tíma. Þetta er fagnaðarefni þar sem ASÍ hefur lengi kallað eftir slíku samráði," sagði Gylfi Arnbjörnsson.
Til baka