07. maí 2009 09:39
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 2,5 prósentustig í 13,0%. Vextir daglána lækka einnig um 2,5 prósentustig en aðrir vextir Seðlabankans lækka um þrjú prósent. Hafa stýrivextir þá lækkað úr 18% í 13% á undanförnum tveimur mánuðum. Miðstjórn ASÍ ályktaði í gær um vaxtamál þar sem skorað var á Seðlabankann að færa stýrivexti í 5,25%.
Til baka