06. maí 2009 16:28
Ályktun miðstjórnar ASÍ um lækkun vaxta
Miðstjórn ASÍ krefst þess að vextir lækki verulega.Miðstjórnin hvetur því Seðlabanka Íslands til að lækka stýrivexti við vaxtaákvörðun á morgun þannig að vaxtamunurinn verði ekki meiri en sem nemur 4% miðað við evrópska seðlabankann en vextir þar eru í dag 1,25%.
Fjölda heimila og fyrirtækja er að blæða út vegna ofurhárra vaxta á sama tíma og þjóðin býr við miklar hömlur á gjaldeyrismarkaði. Miðstjórn ASÍ óttast að verði ekki snúið af þessari óheillabraut blasi við frekari fjöldauppsagnir og gjaldþrot. Þessi vaxtastefna ógnar jafnframt bankakerfinu eins og það leggur sig. Samkvæmt upplýsingum viðskiptaráðherra er mikið ójafnvægi milli innlendra skulda bankanna og eigna þeirra í erlendri mynt. Háir vextir gera það erfitt að taka á þessum mikla halla á gengisjöfnuði. Verði hann ekki réttur af mun kostnaðurinn lenda af fullum þunga á ríkissjóði, almenningi og fyrirtækjum, sem þegar róa lífróður.
Til baka