Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
06. maí 2009 09:18

Áherslur ASÍ í viðræðum við stjórnvöld

Á fundi forseta og varaforseta Alþýðusambandsins með oddvitum stjórnarflokkana í gær voru áherslur ASÍ gegn bráðavanda heimila og atvinnulífs lagðar fram.  Áherlsurnar eru í 9 liðum.

Áherslur ASÍ í viðræðum við stjórnvöld:

1. Stefnt verði að því að gerð þríhliða sáttmála um forendur stöðugleika, m.a. á grundvelli umsóknar um aðild að ESB og upptöku evru.

2. Endurskipulagning á skuldum heimilanna verði sett í forgang

a. Auðvelda verður framkvæmdina á lögum um greiðsluaðlögun skulda, m.a. með því að:

i. Tryggt verði að nauðsynlegar reglugerðir og verklagsreglur um framkvæmd verði gefnar út strax, þar sem tryggt verði m.a. að krafa um að lán verði sett í skil sem forsendu fyrir aðstoð verði vikið til hliðar.

ii. Ráðgjafastofa um fjármál heimilanna í samráði við héraðsdóm ráði a.m.k. 50 fjármálaráðgjafa til næstu 6-9 mánaða til að aðstoða fólk í greiðsluvanda.

iii. Farið verði í umfangsmikið kynningaátak með dagblaðaauglýsingum, bæklingum og fræðslufundum þar sem þau úrræði sem til staðar eru verði kynnt.

b. Stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna sem hafi forræði yfir afskriftareikningum banka og fjármálastofnana vegna skulda heimilanna og vinni skipulega að því að endurskipuleggja fjárhag viðkomandi heimila.

3. Áhersla verði á aukna atvinnu á næstu mánuðum

a. Hraða og ýta á eftir mannaflsfrekum framkvæmdum og útboð verði auglýst strax.

b. Stofnaður verði fjárfestingarsjóður í samstarfi ríkisins, lífeyrissjóðanna og erlendra kröfuhafa til að koma að uppbyggingu atvinnulífsins.

c. Gengið verði frá reglugerðum um framkvæmdina á endurgreiðslu VSK til sveitarfélaganna.

4. Velferðarkerfi vinnumarkaðarins

a. Staðið verði vörðu um grundvallarþætti varðandi atvinnuleysistryggingar, fæðingarorlof og ábyrgð á launum við gjaldþrot.

b. Auka þarf áherslu á virkar vinnumarkaðsaðgerðir og heimildir í lögum nýttar.

5. Menntamál

a. Mótuð verði framkvæmdaáætlun um að ekki fleiri en 10% á vinnumarkaði verði án viðurkenndrar verk- og framhaldsmenntunar árið 2020.

b. Standa verður vörð um framlög til að treysta stöðu fólks á vinnumarkaði með litla formlega menntun.

6. Barnafólk

a. Efla barnabótakerfið með því að hækka bætur og draga úr tekjutengingum.

b. Huga sérstaklega að þeim hópi sem ekki hefur tök á að greiða fyrir aðgang að leikskólum, gæslu og máltíðum í grunnskólum, íþrótta- og tómstundastarfi í samstarfi við sveitarfélögin.

7. Heilbrigðismál

a. Setja hámark á þátttöku sjúklinga í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu og lyfja.

8. Lífeyris- og tryggingamál

a. Tryggja verður jafnræði í áhrifum bankahrunsins á samtryggingarlífeyrissjóði landsmanna og lífeyrisréttindi almennra launamanna.

b. Aðilar vinnumarkaðarins hafi beina aðkomu að endurskoðun á almannatryggingum og endurskoðun á verkaskiptingu þeirra og lífeyrissjóðanna.

i. Tryggja verður að frítekjumark nái einnig til greiðslna úr lífeyrissjóðum.

ii. Standa verður vörð um lágmarkstekjuviðmið almannatrygginga en koma jafnframt í veg fyrir óhóflegar tekjutengingar.

iii. Greiðsluskylda atvinnurekenda í Starfsendurhæfingarsjóð og starfsmenntasjóði verði lögbundin.

iv. Framlög sjúkrasjóða vegna forvarna og endurhæfingar og starfsmenntasjóða vegna starfsmenntunar og fullorðinsfræðslu verði skattfrjáls.

v. Sett verði lög um mótframlag ríkisins í Starfsendurhæfingarsjóð m.a. með hliðsjón af lögum um jöfnun örorkulífeyrisbyrðina.

vi. Unnið verði að breytingum á örorkubótarétti, m.a. í ljósi nýs starfsgetumats.

vii. Unnið verði að samræmingu á veikinda- slysa- og örorkubótarétti á vinnumarkaði og almannatrygginga.

9. Húsnæðismál

a. Ungu fólki verði auðveldað að kaupa sína fyrstu íbúð, m.a. hækkun lágmarksláns.

b. Sveitarfélög verði gert auðveldara að fjölga félagslegum leiguíbúðum á viðráðanlegum leigukjörum.

c. Einfalda og efla núverandi kerfi húsaleigu- og vaxtabóta.



Til baka