06. maí 2009 09:04
Forysta ASÍ krefst nú þegar aðgerða stjórnvalda til að mæta greiðsluvanda heimilanna. Það er algerlega óásættanlegt að stjórnsýslan og bankakerfið dragi lappirnar við að setja í framkvæmd úrræði sem stjórnvöld hafa kynnt og jafnvel sett í lög. Krafa ASÍ er að endurreisn á fjárhag heimilanna eigi að hafa allan forgang hjá stjórnvöldum.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra boðuðu fulltrúa ASÍ, BSRB, BHM, KÍ og SSF á sinn fund í gær til þess að ræða framvindu efnahags- og ríkisfjármála og þríhliða samstarf við endurskoðun og gerð kjarasamninga. Fulltrúar ASÍ á fundinum voru þau Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ. Á fundinum fóru fulltrúar launafólks yfir drög að þríhliða sáttmála um stöðugleika, en verkalýðshreyfingin hefur lagt á það áherslu að koma í veg fyrir að mistök í hagstjórn undanfarinna ára endurtaki sig. Jafnframt lögðu fulltrúar ASÍ fram áherslur samtakanna við stjórnvöld um ýmis framfaramál sem ASÍ kallar stjórnarflokkana til samstarfs um.
Jafnframt gerði forusta ASÍ forsætisráðherra grein fyrir því að langlundargeð ASÍ væri á þrotum varðandi aðgerðir ríkisstjórnarinnar í endurskipulagningu á fjárhag heimilanna. ASÍ hefur í allan vetur barist fyrir því að fá í gegn lög og reglur til að auðvelda og hraða endurreisn á fjárhag heimilanna. Þar ber helst að nefna lög um greiðsluaðlögun skulda heimilanna, bæði almennra skulda og fasteignaveðlána. Þetta tókst á lokadögum þingsins þegar málið náðist í höfn á Alþingi. Það er hins vegar algerlega óásættanlegt að stjórnsýslan og bankakerfið dragi síðan lappirnar við að setja þetta í framkvæmd. Áður en ráðist verði í frekara samstarf á næstu vikum ætlast ASÍ til þess, að endurreisn á fjárhag heimilanna hafi allan forgang þegar í dag. Í því sambandi lagði ASÍ til:
1. Tryggt verði að nauðsynlegar reglugerðir og verklagsreglur um framkvæmd verði gefnar út strax, þar sem tryggt verði m.a. að krafa um að lán verði sett í skil sem forsendu fyrir aðstoð verði vikið til hliðar
2. Ráðgjafastofa um fjármál heimilanna í samráði við héraðsdóm ráði a.m.k. 50 fjármálaráðgjafa til næstu 6-9 mánaða til að aðstoða fólk í greiðsluvanda
3. Farið verði í umfangsmikið kynningaátak með dagblaðaauglýsingum, bæklingum og fræðslufundum þar sem þau úrræði sem til staðar eru verði kynnt
4. Stofnaður verði Bjargráðasjóður heimilanna sem hafi forræði yfir afskriftareikningum banka og fjármálastofnana vegna skulda heimilanna og vinni skipulega að því að endurskipuleggja fjárhag viðkomandi heimila
Til baka