Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
01. maí 2009 13:46

Úthlutun úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar fyrir árið 2009

Úthlutað hefur verið úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar fyrir árið 2009. Styrkurinn er ætlaður til verkefna er varða íslenskt samfélag og málefni launafólks og til að efla rannsóknir og útgáfu á verkum sem varða sérstaklega íslenskt samfélag, vinnumarkaðinn, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Fjórir af fimm styrkþegum ásamt úthlutunarnefndinni.

 

Alls bárust 10 umsóknir. Styrk að þessu sinni hljóta fimm aðilar.  Þeir eru:

Alþýðusamband Vestfjarða vegna verkefnisins „Saga verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum“. Styrkur að fjárhæð 500.000.

Um er að ræða ritverk um sögu verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum frá árinu 1906 til 2006, þar sem saga verkalýðshreyfingarinnar er samofin þróun byggðar og samfélagshátta á svæðinu. Áætlað er að verkið komi út í tveimur bindum á árunum 2009 og 2010.

Bókasafn Dagsbrúnar vegna skráningar á bókum og öðrum gögnum Bókasafns Dagsbrúnar. Styrkur að fjárhæð 300.000.

Styrkurinn er veittur til að unnt sé að ráða starfsmann í hlutastarf til að aðstoða við skráningu á bókum og öðrum gögnum í eigu safnsins og gera þau þannig aðgengilegri fyrir fræðimenn og annað áhugafólk um sögu verkalýðshreyfingarinnar og samfélagsmál.

Bókasafn Dagsrúnar er eina bókasafn landsins sem sérhæfir sig í ritum er varða sögu verkalýðshreyfingarinnar.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson vegna verkefnisins „Þróun og skipulag íslensks vinnumarkaðar frá 1986-2006“. Styrkur að fjárhæð 500.000.

Um er að ræða doktorsverkefni í félagsfræði við Háskóla Íslands. Verkið byggist á fjórum sjálfstæðum greinum. Fjallað er um íslenskan vinnumarkað í fræðilegu samhengi, breytt hlutverk stéttarfélaga, þróun kjarasamninga og verkföll og vinnudeilur.

Jóhanna Rósa Arnardóttir vegna verkefnisins „Leið ungmenna frá skóla til vinnu. Jöfn tækifæri eða félagsleg útilokun“. Styrkur að fjárhæð 500.000.

Um er að ræða doktorsverkefni í félagsfræði við Háskóla Íslands þar sem leið ungmenna frá skóla til vinnumarkaðar á Íslandi er könnuð og þá sérstaklega þau sem eru utan skólakerfisins og vinnumarkaðar. Áhersla er lögð á að kanna stöðu þeirra eftir þáttum sem geta skipt máli s.s. atvinnuþátttaka, atvinnuleysi, fyrsta starfið, fjölskyldugerð, menntun foreldra hvort þau hverfa frá framhaldsnámi eða ljúka almennu námi eða starfsnámi. Staða ungmenna á Íslandi er einnig metin með hliðsjón af stöðu ungmenna í Evrópu.

Þórunn Sveinbjörnsdóttir vegna verkefnisins „Starfsmenntun - tækifæri í lífsins skóla“. Styrkur að fjárhæð 500.000.

Verkefnið er samantekt á sögu og þróun starfsmenntunar fyrir fólk í umönnunarstörfum í 30 ár. Fjallað er um tildrög og upphaf fræðslustarfs fyrir félagsmenn í Sókn og síðar Eflingu, stéttarfélagi. Þá er gerð grein fyrir þróuninni fram til dagsins í dag. Þá er fjallað um gildi starfsmenntunar fyrir þennan hóp launafólks m.a. með viðtölum við nemendur og samstarfsaðila og umsögnum atvinnulífsins. Styrkurinn mun renna til þess að ljúka verkinu og búa það undir útgáfu.



Til baka


Fréttalisti


Félagsaðild

Á vinnumarkaði er með orðinu félagsaðild vísað...