30. apríl 2009 13:31
Að vanda mun launafólk á Íslandi vekja athygli á kröfum sínum og minnast sigranna á samkomum um allt land á 1. maí, frídegi verkalýðsins.Búist er við góðri þátttöku á samkomum enda langt síðan íslensk þjóð hefur lifað aðra eins samdráttar tíma og nú.Hér má líta lista yfir nokkrar samkomur sem verða á morgun en kröfugöngunnar og fundarins á Austurvelli er getið í sérstakri frétt.
Föstudaginn 1.maí n.k. býður Verkalýðsfélag Þórshafnar öllum frítt í Íþróttamiðstöðina milli kl.11.00-17.00. Kaffiveitingar eru einnig í boði V.Þ. frá kl.15.00-16.30 á sama stað.
Samkoma verður á Hótel Stykkishólmi. Dagskrá hefst kl.15 með harmonikkuleik. Leikfélagið Grímnir verður með nokkur lög úr Jesús Krist superstar. Dóri Gylfa.Skemmtir. Ræðumaður dagsins verður Þorsteinn Sigurðsson. Kynnir Anna Sigríður Guðmundsdóttir.Veitingar í boði Verkalýðsfélags Snæfellinga.
VM - félag Vélstjóra og málmtæknimanna bíður til kaffisamsætis að Stórhöfða 25 að loknum útifundinum á Austurvelli. Harmonikkuleikur og myndlistarsýning.
Matvís og Rafiðnaðarsambandið bjóða til kaffisamsætis að Stóhöfða 31 að loknum útifundinum í Reykjavík.
Í Vestmannaeyjum verða 1. maí hátíðarhöldin haldin í Alþýðuhúsinu og hefjast kl. 15.00. Húsið opnar kl. 14.30.Arnar G. Hjaltalín formaður Drífanda stéttarfélags flytur 1. maí ávarpið. Litlir lærisveinar sjá um tónlistaratriðin. Kaffisamsæti í boði stéttarfélaganna.
1. maí hátíðin í félagsheimilinu á Blönduósi hefst kl. 16.00. Kaffiveitingar í boði Stéttarfélagsins Samstöðu sem USAH sér um að venju. Lúðrasveit Tónlistarskóla A. Húnavatnssýslu leikur. Stjórnandi : Skarphéðinn Einarsson. Ræðumaður dagsins: Sigríður Arnardóttir félags- og fjölmiðlafræðingur, öðru nafni Sirrý fjölmiðlakona. Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps syngur. Stjórnandi: Sveinn Árnason. Undirleikari: Elínborg Sigurgeirsdóttir. Myndasýning fyrir börnin, góðar veitingar og góð dagskrá.
Á Húsavík hefst hátíðardagskrá í Íþróttahöllinni kl. 14. Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar flytur ávarp. Hátíðarávarpið flytur Böðvar Pétursson Baldursheimi Mývatnssveit. Gísli Einarsson fréttamaður fer með gamanmál. Mannakorn leikur fyrir gesti auk annarra tónlistaratriða. Stéttarfélögin bjóða upp á kaffiveitingar.
Á Akranesi verður safnast saman við Kirkjubraut 40 kl. 14 og genginn hringur á neðri Skaga.Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness að Kirkjubraut 40.Vilhjálmur Birgisson formaður félagsins er ræðumaður dagsins.Grundartangakórinn og kvennakórinn Ymur flytja nokkur lög.Kaffiveitingar og frítt í bíó fyrir börnin kl. 15.
Á Ísafirði verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi.Ræðumaður dagsins er Matthildur Jónu og Helgadóttir feministi og framkvæmdastjóri. Lúðrasveit tónlistaskólans leikur. Stjórnandi Madis Maekalle. Kristín Hálfdánardóttir frá Bolungarvík leikur á harmoniku. Pistill dagsins Guðný Harpa Henrýsdóttir. Við heimtum aukavinnu! Atriði úr þessari skemmtilegu sýningu sem Litli leikklúbburinn og Kómedíuleikhúsið setti upp í vetur. Sýningin er alþýðleg leik- og söngskemmtun byggð á ljóðum og lögum Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Kaffiveitingar í boði 1. maí nefndar í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum.Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00.Ljósmyndasýning í Edinborg.
Á Akureyri safnast göngufólk saman við Alþýðuhúsið kl. 13:30. Kröfuganga leggur af stað kl. 14 undir forystu Lúðrasveitar Akureyrar. Hátíðardagskráin fer fram í Sjallanum. Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju og Elsa Sigmundsdóttir frá Starfsendurhæfingarsjóði flytja ávörp en aðal ræðumaður dagsins er Sigurður Bessason formaður Eflingar. Boðið verður upp á kaffiveitingar og fjölbreytta tónlistardagskrá.
1.maí hátíðarhöldiná Suðureyri hefjast með kröfugöngu frá Brekkukoti. Boðsund í Sundlaug Suðureyrar. Kaffihlaðborð í Bjarnaborg.1. maí ávarp. Árni á Vöðlum þenur harmónikkuna. Söngur og tónlistaratriði barna.
Á Siglufirði verður dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24 14-16:30. Margrét Jónsdóttir flytur 1. maí ávarp. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
1. maí hátíð verður haldin á Hótel Borgarnesi. Dagskráin hefst kl. 14:00. Hátíðina setur Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands. Barnakór Borgarness syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. Hátíðarræða: Baldur Jónsson ritari Stéttarfélags Vesturlands.
Tónlistaratriði nemenda Heiðarskóla. Nemendur í tónlistarvali úr Grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum flytja nokkur lög. Dúettinn Davíð Ólafsson og Stefán H. Stefánsson.Samkór Mýramanna . Internasjónalinn. Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffiveitingar að lokinni dagskrá. Birgir Þórisson, ungur og efnilegur tónlistarmaður úr Borgarnesi leikur á píanó meðan gestir njóta veitinganna. Tvær kvikmyndasýningar fyrir börn í Óðali kl. 13:00 og 15:00.Boðið verður upp á popp og ávaxtasafa.
1. maí hátíðin í Búðardal verður haldin í Dalabúð. Húsið opnar kl. 15:00. Kynnir: Kristín G. Ólafsdóttir. Ræðumaður verður Sjöfn Elísa Albertsdóttir. Trúbadorinn Ingó tekur nokkur lög. Kaffiveitingar að dagskrá lokinni.
Á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí býður Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis öllum félagsmönnum til kaffisamsætis í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Ræðumaður dagsins er Grétar Mar Jónsson. Söngdívurnar Konfekt syngja.Barnakór Grunnskóla Sandgerðis syngur undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttir. Kaffiveitingar. Að lokinni hefðbundinni dagskrá munu Suðurnesjamenn spila gömlu dansana, hvetjum við fólk til að koma og fá sér snúning.
Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur stendur fyrir glæsilegri dagskrá í hátíðasal Fjölbrautaskóla Suðurnesja í samvinnu við önnur félög sem starfa á svæðinu. Húsið opnar kl. 13:45. Ræðumaður dagsins verður Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Afl stendur fyrir hátíðarhöldum á Asturlandi og má sjá dagskrána hér.
Ath! Þessi listi er ekki tæmandi.
Til baka