22. apríl 2009 11:27
Starfsendurhæfingasjóður efnir til morgunverðarfundar þriðjudaginn 28. apríl kl. 8:15 – 10:00 á Grand Hótel Reykjavík. Verður þar m.a. fjallað um hlutverk og áherslur Starfsendurhæfingarsjóðs sem varð til með kjarasamningum í febrúar á síðasta ári en það eru aðilar vinnumarkaðarins sem standa að sjóðnum.
Sérstakur gestur fundarins verður Gail Kovacs en hún er sérfræðingur á sviði starfsendurhæfingar og hefur starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi á því sviði um áratuga skeið í Bretlandi, Kanada og Bandaríkunum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
·Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingarsjóðs. „Hlutverk og áherslur Starfsendurhæfingarsjóðs“
·Gail Kovacs, sérfræðingur í starfsendurhæfingu og alþjóðlegur ráðgjafi. „Vocational Rehabilitation: The Capacity to Avoid Incapacity“
·Umræður með þátttöku fundarmanna.
Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við alla áhugasama um starfsendurhæfingu til að koma og hlusta á áhugaverða fyrirlestra.
Fundurinn og veitingar eru í boði Starfsendurhæfingarsjóðs. Þátttakendur eru beðnir um að skrá þátttöku sína fyrir sunnudaginn 26. apríl nk. á www.virk.is Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á virk@virk.is.
Meðfylgjandi er auglýsing vegna fundarins í
pdf formi.
Til baka