21. apríl 2009 09:07
Tæplega 5.600 króna verðmunur getur verið á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á dekkjum. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 28 þjónustuaðilum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri föstudaginn 17. apríl. Mestur reyndist munurinn á hæsta og lægsta verði á hjólbarðaskiptingu fyrir jeppa á 30-32” dekkjum, rúm 72% og jeppa á 29” dekkjum 71%.
Þjónustan fyrir fólksbíl á 13-15” dekkjum með stálfelgum kostaði kr. 5.200 hjá Hjólbarðaverkstæði Vöku, Eldshöfða þar sem hún var ódýrust en kr. 7.136 hjá Höldur hjólvarðaverkstæði Akureyri þar sem hún var dýrust. Það er 1.936 króna munur á hæsta og lægsta verði eða 37%.Fyrir sambærilegan bíl á álfelgum kostar þjónustan frá kr. 5.200 hjá Hjólbarðaverkstæði Vöku upp í kr. 7.690 hjá Hjólbaraverkstæði Heklu, Klettagörðum sem er 2.490 króna verðmunur eða tæplega 48%.
Töflu með samanburði á verði verkstæða má sjá hér.
10 - 16% hækkun frá síðustu könnun
Þjónusta hjólbarðaverkstæða við fólksbíla hefur að meðaltali hækkað um 10% frá síðustu könnun verðlagseftirlitsins sem gerð var í október 2007. Meiri hækkun hefur þó orðið á þjónustu við jepplinga og meðalstóra jeppa eða um 11%. Þjónusta við stóra jeppa hefur hækkað mest eða um tæp 16% að meðaltali
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.
Hugmyndasamkeppni
Til baka