Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. apríl 2009 15:34

Staðan á vinnumarkaði í mars

Atvinnuleysi var að meðaltali 8,9% í mars samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar og voru að meðali 14.546 manns atvinnulausir í mánuðinum. Fjöldi atvinnulausra jókst um 1.270 manns frá því í febrúarmánuði en hægt hefur á fjölgun atvinnulausa miðaða við mánuðina á undan. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir áframhaldandi fækkun starfa í verslun og þjónustugreinum á næstu mánuðum en væntir þess að á móti vegi árstíðarbundin uppsveifla í ferðaþjónustu og mannvirkjagerð. Líkur séu því til þess að atvinnuleysi breytist lítið í aprílmánuði. Á hinn boginn má benda á að í maí og júní munu námsmenn taka að streyma út á vinnumarkaðinn og má þá enn búast við nokkurri fjölgun atvinnulausra.

Atvinnuleysi í mars var hlutfallslega mest á Suðurnesjum 14,3%, á höfuðborgarsvæðinu 9,5% og á Norðurlandi eystra 8,8%. Karlar voru um 65% atvinnulausra í mars og fólk í aldurshópnum 16-24 ára var 22% atvinnulausra.

Samkvæmt tölum um skráð atvinnuleysi í lok mars eru flestir atvinnulausir í mannvirkjagerð (3.480 manns) og verslun ( 3.035 manns), í iðnaði (1.913), flutningsstarfsemi (1.133) og ýmiss konar sérhæfðir þjónustu (1.126).

Vinnumálastofnun bárust 7 tilkynningar um hópuppsagnir í mars sem ná samtals til 357 einstaklinga. Þar af eru flestir starfandi í ýmiskonar þjónustustarfsemi ( 299 manns). Þessar uppsagnir koma að líkindum flestar til framkvæmda nú á vormánuðum.

Atvinnuþátttaka dregst saman og vinnutími styttist

Hagstofa Íslands hefur birt upplýsingar um stöðu á vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi 2009. Sveigjanleiki vinnumarkaðarins endurspeglast í þeim tölum sem þar birtast og augljós merki um breytta hegðun fólks á vinnumarkaði. Atvinnuþátttaka var 79,5% á fyrsta ársfjórðungi og hefur dregst nokkuð saman frá fyrra ári. Athygli vekur að atvinnuþátttaka dregst meira saman í hópi karla en kvenna. Þá fjölgar þeim sem eru í hlutastöfum talsvert og meðalfjöldi vinnustunda í viku fækkar á milli ára, úr 40,8 stundum á viku í 38 stundir.



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...