Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. febrúar 2009 14:17

Greiðsluaðlögun nái til allra veðskulda

Alþingi hefur nú til meðferðar frumvarp dómsmálaráðherra um greiðsluaðlögun. Málið var til umfjöllunar í allsherjarnefnd Alþingis í morgun og á þeim fundi lagði ASÍ til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Í umsögn ASÍ kemur fram að sambandið styður mjög eindregið framgang málsins og telur það geta falið í sér öflug varnarviðbrögð vegna vaxandi fjárhagsvanda heimilanna.   ASÍ leggst hins vegar eindregið gegn því, að þau efnisákvæði frumvarpsins sem mæla fyrir um skilmálabreytingar veðskulda innan veðmarka verði annars vegar sett til bráðabirgða og hins vegar einskorðuð við veðskuldir í eigu Íbúðalánasjóðs og fjármálafyrirtækja í eigu ríkisins.

ASÍ hefur oft á undanförnum árum veitt þingsályktunartillögum varðandi greiðsluaðlögun stuðning sinn. Það átti þess kost að eiga samræðu við viðskiptaráðuneytið þegar starfshópur á vegum þess vann að gerð samskonar frumvarps og einnig við réttarfarsnefnd þegar fyrrverandi dómsmálaráðherra lét semja kjarna þess frumvarps sem ný ríkisstjórn hefur nú lagt fram með nokkrum grundvallar breytingum í þágu skuldara og fjölskyldnanna í landinu. ASÍ hefur ætíð lagt áherslu á, að greiðsluaðlögun yrði að taka til allra veðskulda. Í fyrsta lagi þeirra sem eru alveg utan við verðmæti veðandlags. Í öðru lagi þeirra sem lenda að hluta utan verðmætis veðandlags og loks í þriðja lagi að heimilt verði að breyta skilmálum þeirra sem alveg eða að hluta lenda innan verðmætis veðandlags þ.a. að skuld verði greiðanlegri m.v. greiðslugetu skuldara. Í þessu efni er afstaða ASÍ samhljóða niðurstöðu nefndar félagsmálaráðherra um greiðsluaðlögun sem lauk störfum í maí 1994 en frá þeim tíma hefur málinu ekki þokað þar til nú.

Umsögn ASÍ um frumvarpið má lesa hér.



Til baka


Fréttalisti


Atvinnusjúkdómur

er sjúkdómur, sem á beint eða óbeint rætur...