Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. febrúar 2009 11:27

Ný spá hagdeildar ASÍ var kynnt í dag – mikið atvinnuleysi næstu 3 ár

Framundan er mesta samdráttarskeið sem íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum á síðari árum. Fyrir höndum eru tvö erfið ár en það tekur að rofa til að nýju á árinu 2011. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá hagdeildar ASÍ.

Útlit er fyrir að niðursveiflan verði bæði dýpri og lengri en fyrstu spár í haust gerðu ráð fyrir. Erfitt hefur reynst að koma starfsemi bankakerfisins aftur í viðunandi horf eftir bankahrunið og skapa tiltrú á íslenskt efnahagslíf auk þess sem horfur erlendis fara versnandi.

Næstu tvö árin dregur mjög úr umsvifum í hagkerfinu og samdráttur í landsframleiðslu verður verulegur. Umskipti verða á árinu 2011 þegar landsframleiðslan tekur að aukast að nýju. Þessi sýn byggir á þeirri forsendu að það takist að skapa traust á íslensku efnahagslífi á ný og blása lífi í íslensku krónuna. Ef það tekst ekki, er hætta á að hagkerfið festist í fjötrum.

Horfur á vinnumarkaði eru dökkar allt tímabilið og útlit fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 8-9% næstu þrjú árin. Ólíklegt er að draga fari úr atvinnuleysi fyrr en á síðari hluta ársins 2011.

Verðbólga gengur hratt niður á næstu mánuðum og verður komin undir 3% í lok þessa árs. Samhliða lækkandi verðbólgu má búast við að Seðlabankinn lækki stýrivexti.

Skýrslu hagdeildar ASÍ, Horfur í efnahagsmálum 2009-2011, má lesa í heild sinni hér.

Ólafur Darri Andrason deildarstjóri hagdeildar í viðtali við Rúv eftir fréttamannafundinn í dag.



Til baka


Fréttalisti


Einelti

er skilgreint sem ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg...