Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. febrúar 2009 10:06

Samiðn vill frestun á endurskoðun kjarasamninga til sumars

Sambandsstjórn Samiðnar samþykkti á fundi sínum á Grand hóteli í gær að veita miðstjórn umboð til að fresta endurskoðun á launalið kjarasamninga sem taka átti gildi þann 1. mars n.k. fram á sumar.  Jafnframt lýsti sambandsstjórnin yfir vonbrigðum með hversu hægt gangi hjá stjórnvöldum að taka ákvarðanir um viðbrögð við auknu atvinnuleysi meða félagsmanna Samiðnar.  Ný ríkisstjórn undir kjörorðunum "látum verkin tala" og Alþingi þurfa að sameinast um að tryggja kraftmiklar aðgerðir svo koma megi atvinnulífiinu aftur í gang. 

Sambandsstjórnin skorar jafnframt á stjórnmálaflokkana að undirbúa umræðuna um aðild að ESB þannig að þjóðin geti tekið afstöðu til þess í næstu kosningum hvort hún vilji sækja um aðild eða ekki. 

Þá beinir samandsstjórnin því til verktaka og opinberra aðila að virða vinnulöggjöfina en mikilvægt er að gott samstarf takist við samtök launagreiðenda og opinbera aðila um að beina viðskiptum sínum til aðila sem hafa tilskilin fagréttindi þar sem slíkt á við.



Til baka


Fréttalisti


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...