Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
06. febrúar 2009 10:30

Samtök heilsuræktarstöðva og ASÍ styrkja atvinnulausa til heilsuræktar

Samtök heilsuræktarstöðva, SHS og Alþýðusamband Íslands, ASÍ gerðu í dag með samning þess efnis að styrkja einstaklinga í atvinnuleit til að stunda heilsurækt. Ágústa Johnson, formaður SHS og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ undirrituðu samninginn. Reikna má með því að samninguirnn verði virkur frá og með miðri næstu viku.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ og Ágústa Johnson, formaður SHS ánægð með samninginn.

Atvinnuleysi hér á landi hefur stóraukist undanfarið vegna erfiðs efnahagsástands. Að mati Alþýðusambands Íslands og Samtaka heilsuræktarstöðva eru það ótvíræðir hagsmunir einstaklinganna og þjóðfélagsins alls að atvinnuleitendum sé gefinn kostur á að rækta líkamlegt og andlegt atgervi. Færðar hafa verið sönnur á að regluleg hreyfing sé mikilvæg undirstaða heilbrigðis.

Vegna þessara aðstæðna hafa ASÍ fyrir hönd aðildarfélaga sinna og SHS fyrir hönd aðildarfyrirtækja sinna gert með sér samning um að styrkja einstaklinga í atvinnuleit til að geta stundað heilsurækt. Samningurinn gildir til og með 31.12.2009.

Stéttarfélög innan ASÍ sem gerast aðila að samningi þessum styrkja félagsmenn sína sem hafa misst vinnuna og eru atvinnulausir um kr. 2.000 að lágmarki á mánuði til að stunda heilsurækt. Heilsuræktarstöðvar innan SHS veita þessum viðskiptavinum að lágmarki 50% afslátt á greiðslu af mánaðarkortum stöðvanna.

Samninginn í heild sinni má lesa hér.



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...