05. febrúar 2009 13:03
Nýleg rannsókn sýnir að leiðréttur kynbundinn launamunur á Ísland er 19,5%.Það þýðir að karlar eru að jafnaði með 19,5% hærri heildarlaun en konur þegar búið er að taka tillit til vinnutíma, starfs, menntunar, aldurs, atvinnugeira, ábyrgðar í starfi og þess hvort fólk er sjálfstætt starfandi eða launafólk. Kynbundinn launamunur á landsvísu er 22,4% í einkageiranum en í opinbera geiranum mældist kynbundinn launamunur aðeins meðal starfsmanna með framhaldsskólamenntun. Ástandið er því aðeins betra þar.
Mest sláandi er kynbundni launamunurinn á landsbyggðinni. Þar eru karlar með 38% hærri heildarlaun en konur þegar tekið hefur verið tillit til þeirra þátta sem nefndir voru hér að framan. Á höfuðborgarsvæðinu er launamunurinn 10,3%. Þessi munur á landsbyggðinni veldur áhyggjum, þar sem þessi mikli launamunurinn er meðal þeirra starfsstétta sem krefjast menntunar. Niðurstöðurnar eru ekki hvetjandi fyrir ungar menntaðar konur að leita starfsframa á landsbyggðinni.
Til baka