Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
04. febrúar 2009 15:07

Matarkarfan ódýrust í Bónus

8,1% verðmunur reyndist á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum í gær, þriðjudag. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði kr. 12.421 en dýrust íNettó kr. 13.422, verðmunurinn er 1.001 krónur. Athygli vekur að lítill verðmunur er á verði körfunnar í Kaskó, Krónunni og Nettó.

Af einstökum liðum í vörukörfunni er minnstur verðmunur milli verslana á mjólkurvörum og áberandi er að mun minni verðmunur er á þeim vörum sem seldar eru í sömu pakkastærð í öllum verslunum. Mikill munur er oft á mælieiningaverði vara frá þekktum vörumerkjum sem fáanlegar eru í öllum verslunum í misstórum einingum. Sem dæmi má nefna að 37% verðmunur var á Ariel Biological þvottaefni sem var dýrast kr. 807 í Krónunni en ódýrast kr. 589 í Bónus. Mikill verðmunur var á grænmeti og ávöxtum eða allt að 100,5% á gulrótum sem voru ódýrastar í Nettó kr. 199 kg. en í kr. 399 kg. í Krónunni.Í Bónus kostaði kíló af kínakáli kr.198 kg. sem er 76,3% ódýrara en í Nettó þar sem kílóið kostaði kr. 349. Athygli vekur að af þeim 36 vörum sem eru í vörukörfunni var 1 krónu verðmunur á milli Bónus og Krónunnar í 11 tilvikum og sama verð í báðum verslunum í 5 tilvikum

Vörukarfan samanstendur afalmennum neysluvörum til heimilisins ss. mjólkurvörum, osti, brauðmeti, morgunkorni ávöxtum, grænmeti, áleggi, kjöti, drykkjarvörum, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat ofl. Við útreikning á verði vörukörfunnar er tekið mið af því hvar neytandinn fær mesta magn af ákveðnum matvöru fyrir sem lægst verð. Vörurnar í körfunni eru flestar frá þekktum vörumerkjum sem þó geta verið seldar í mismunandi pakkastærðum eftir verslunum. Er þá tekið mið af lægsta mælieiningarverði (kíló/lítra/stykkjaverð) vörunnar í hverri verslun. Sem dæmi eru Pampers Baby dry bleyjur Maxi 7 – 18 kg. seldar í tveimur mismunandi pakkaningum í verslunum, 62 stk. og 44 stk., hér er því reiknað út stykkjaverð til þess að átta sig á því hvar fæst mest magn af þessari vöru fyrir lægst verð. Í þeim tilvikum þar sem vörumerki eru mismunandi eftir verslunum ss. í kjöti, fiski og grænmeti og ávöxtum er tekið verð á ódýrustu fáanlegu vöru sem uppfyllir sett skilyrði í viðkomandi verslun.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum: Bónus Hallveigarstíg, Krónunni Bíldshöfða, Nettó í Hverafold ogKaskó Vesturbergi.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Töflu sem að sýnir verð á einstökum vörum í könnuninni má sjá hér.



Til baka


Fréttalisti


Aðilaskipti að fyrirtækjum

eða hluta þess fela það í sér að nýr aðili...