Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
04. febrúar 2009 12:28

Ráðningu framkvæmdastjóra ASÍ frestað um óákveðin tíma

Við afgreiðslu starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir ASÍ í janúar var tekin ákvörðun um að fresta um óákveðin tíma ráðningu framkvæmdastjóra ASÍ vegna mikillar óvissu um tekjur sambandsins í ljósi fyrirsjáanlegs samdráttar í bæði fjölda félagsmanna og heildartekjum þeirra.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mun gegna hlutverki framkvæmdastjóra samhliða störfum sínum, en jafnframt hefur verið ákveðið að fela Eyrúnu Björk Valsdóttur, deildarstjóra Fræðsludeildar, að sinna starfsmannastjórn á skrifstofu sambandsins og Ólafi Darra Andrasyni, deildarstjóra Hagdeildar, að sinna fjármálastjórn.

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Til baka


Fréttalisti


Einelti

er skilgreint sem ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg...