Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
29. janúar 2009 14:45

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 35% á 9 mánuðum - Bónus hefur hækkað mest

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um allt að 35% frá því að verðlagseftirlitið hóf mælingar á körfunni í öllum helstu matvöruverslunarkeðjum í apríl í fyrra. Vörukarfan, sem inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur til  heimilisins, hefur á þessu níu mánaða tímabili hækkað mest í lágvöruverðsverslunum um 30%-35% og í klukkubúðum um 24%-26%.

Af þeim tíu verslunarkeðjum þar sem verð vörukörfunnar er mælt hefur verðið hækkað mest í Bónus, um 35,4% frá því í apríl og um 34,1% í Kaskó. Í Nettó hefur karfan hækkað um 30,6% og í Krónunni um 29,4%.

 

Í klukkubúðunum hefur verð körfunnar hækkað mest í Samkaupum-Strax eða um 26,4% frá því í vor. Í 11-11 nemur hækkunin 24,6% og í 10-11 hefur vörukarfan hækkað um 23,8% á síðustu níu mánuðum.

 

Í stórmörkuðunum hefur karfan hækkað mest í Samkaupum-Úrval um 21,2% en minnstar hækkanir á vörukörfunni á tímabilinu hafa hins vegar verið í Nóatúni 14,3% og í Hagkaupum 14,5%.

 

________________________________________________________________________

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis. Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Kaskó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrval og Klukkubúðunum 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli vikna. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.  

 

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 



Til baka


Fréttalisti


Dráttarvextir

eru refsivextir sem innheimtir eru ef krafa...