Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
28. janúar 2009 13:57

Alþjóðleg verkalýðssambönd kalla eftir nýju vaxtarmódeli

Níunda ráðstefnan undir merkjum World Social Forum hófst í gær í borginni Belem í Brasilíu.Ráðstefnugestir skipta þúsundum en þeir munu næstu daga ræða alþjóðavæðingu, mannréttindi og réttindi verkafólks. Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) verður áberandi á ráðstefnunni að þessu sinni vegna efnahagskreppunnar sem nú geisar.

Í yfirlýsingu segir ITUC að undanfarin ár hafi fjármálakerfi heimsins verið drifið áfram ófyrirleitinni gróðahugsjón.„Kasínó kapítalisma“ megi kenna um þær ógöngur sem heimsbyggðin er komin í. Fjármálamarkaðir heimsins hafi farið illilega út af sporinu og um leið fjarlægst sitt megin hlutverk sem er að sjá um fjármögnun atvinnulífsins.

Það sé því nauðsynlegt að sameinast um nýtt módel sem stuðli að efnahagslegri velsæld sem flestra.Módel þar sem gæðum er endurúthlutað, þar sem borin er virðing fyrir umhverfinu, þar sem regluverkið er skýrt og þar sem rík lönd og fátæk vinna saman í bróðerni. Þannig er hægt að skapa ný tækifæri og ný störf, segir í yfirlýsingu ITUC.



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...