28. janúar 2009 11:23
Atvinnumálanefnd ASÍ stendur fyrir fundum um Evrópusambandsaðild út frá sjónarhóli launafólks. Fengnir eru sérfræðingar og fulltrúar hagsmunaaðila til að reifa álitamál, kosti aðildar, galla og eðlileg samningsmarkmið. Næsti fundur er á morgun, fimmtudag, og fjallar um landbúnaðarmál.
Viðfangsefni: Evrópusambandsaðild og landbúnaður
Stund /staður: Fimmtudagur 29. janúar kl. 13:00-15:00 að Sætúni 1 fjórðu hæð
Dagskrá:
13:00 Framsögur:
Sigurður Jóhannesson, sérfræðingur hjá Hagfræðistofnun HÍ
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands
Eva Heiða Önnudóttir, höfundur skýrslu um neytendur og ESB
Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins
14:00 Kaffi og umræður
15:00 Fundi slitið
Prenta dagskrá
Myndir frá fundi
Fundir ASÍ um ESB
Til baka