Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
28. janúar 2009 10:23

Verðbólgan í janúar mælist 18,6%

 

Verðbólga mældist 18,6% í janúar samkvæmt nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs sem birt var í morgun. Frá því í desembermánuði hefur verðlag hækkað um 0,57%.

 

Líkt og undanfarna mánuði eru miklar verðhækkanir á mat- og drykkjarvörum sem hækka nú um 1,8% frá því í fyrra mánuði og hafa mest áhrif til hækkunar á vísitölunni að þessu sinni. Þar af hækka innfluttar mat- og drykkjarvörur mest eða um 3,2%.  Grænmetisliðurinn, sem samanstendur bæði af innfluttu og innlendu grænmeti, hækkar um 2,4% á milli mánaða og búvörur aðrar en grænmeti um 1,5%. Aðrar innlendar matvörur en grænmeti og búvörur hækka um 1% frá því í desember.

 

Húsnæðisliður vísitölunnar hækkar um 0,9% á milli mánaða sem skýrist að mestu af hækkun á efni til viðhalds og viðgerða á húsnæði sem hækkar um 3,5% frá fyrra mánuði en einnig af hækkun á ýmsum rekstrarkostnaði húsnæðis og hækkun á húsaleigu. Á móti þessu vegur að markaðsverð á eigin húsnæði lækkar lítillega.  

Þá hækkar verð á nýjum bílum um 1,7% frá því í desembermánuði.

 

Verð á áfengi og tóbaki hækkar um 5,9% frá fyrra mánuði sem rekja má til breytinga á áfengis- og tóbaksgjöldum sem ákvörðuð voru fyrir jól og heilbrigðisþjónusta hækkar um 2,6% á milli mánaða vegna hækkana á greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Í heildina hafa þessar breytingar ásamt breytingum á olíugjaldi og vörugjaldi af bensíni sem einnig voru samþykktar undir lok nýliðins árs 0,32% áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs.

 

Til lækkunar á vísitölunni nú koma áhrif af útsölum á fötum og skóm sem lækka um 8,2% frá því í desmeber. Lækkun á flugfargjöldum til útlanda um 14,5% á milli mánaða hefur einnig áhrif til lækkunar á vísitölunni.

 

 



Til baka


Fréttalisti


Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...