27. janúar 2009 15:13
Litlar breytingar hafa orðið á leikskólagjöldum frá janúar 2008 til janúar 2009 og eru þess jafnvel dæmi að þau hafi lækkað umtalsvert. Þannig hefur gjaldskrá leikskóla í Vestmannaeyjum verið lækkuð um rúm 18% á tímabilinu og á Akranesi nemur lækkunin allt að 12%. Með lækkunum hafa þessi tvö sveitarfélög nálgast meðaltal annara sveitarfélaga en áður voru þau með þeim sem voru með dýrustu leikskólaplássin. Hækkanir hafa orðið á fæðiskostnaði á leikskólum á Akureyri 10%og í Kópavogi 9%.
Gjald fyrir 8 tíma vistun með fæði er mjög misjafnt eftir sveitarfélögum. Hæsta mánaðargjald fyrir gifta foreldra og sambúðarfólk er 30.790 kr hjá Ísafjarðarbæ, en á móti kemur að foreldrar fá 30% afslátt á vistun á öðru barni og þurfa ekki að greiða fyrir börn umfram tvö. Dagvistargjald á leikskóla er 59% hærra á Ísafirði en í Reykjavík. Í Garðabæ, sem er með næst hæsta gjaldið, er rukkað 29.970 fyrir mánaðarvistun og er veittur 50% afsláttur af gjaldi fyrir annað barn og 75% af börnum eftir það.
Lægsta gjaldið fyrir 8 tíma vistun með fæði er í Reykjavík, þar er ekki tekið gjald fyrir vistun á barni umfram eitt, sama á við um Fjarðarbyggð. Mánaðarvistun í Reykjavík fyrir gifta foreldra og sambúðarfólk er 19.404 kr. Sértaxtar eru fyrir foreldra sem eru í námi en sá hópur greiðir 15.548 kr. á mánuði og fyrir forgangshópa kostar mánuðurinn 10.956 kr. Dagvistun fyrir forgangshópa er dýrust í Garðabæ, þar sem gjaldið er 24.890 kr.
Einstæðir foreldrar í Garðabæ, foreldrar þar sem báðir eru í námi eða þar sem annað foreldri er 75% öryrki þurfa að greiða 127% hærra gjald en sami hópur í Reykjavík.

Nánari upplýsingar um verð á dagvistun má sjá með því að smella hér.
Til baka