Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
22. janúar 2009 12:32

Miðstjórn ASÍ vill frestun kjaraviðræðna þar til ný ríkisstjórn hefur tekið við

Í viðræðum samninganefndar ASÍ við SA að undanförnu hefur SA óskað eftir því að fá meiri sveigjanleika við að hrinda í framkvæmd ákvæðum kjarasamninga. Erfitt er að taka afstöðu til þessarar beiðni án þess að fyrir liggi niðurstaða um samhenta og öfluga sókn í bæði atvinnumálum og stöðu heimilanna. Ríkisstjórnin hefur hvorki sýnt vilja né nauðsynlegan styrk til þess að koma að þessum viðræðum.

Á fundi miðstjórnar ASÍ í gær kom fram vilji til að fresta viðræðum um endurskoðun kjarasamninga fram í júní.  Í millitíðinni yrði boðað til þingkosninga og ný ríkisstjórn, með nægilegan styrk og endurnýjað umboð, tæki við.  Í kjarasamningum þurfa þrír aðilar að koma að borðinu og það er ljóst að núverandi ríkisstjórn hefur hvorki þann kraft né umboð til að koma að uppbyggingu atvinnulífs og varðstöðu um hag heimilanna til framtíðar. 

ASÍ hefur frá því snemma á síðasta ári reynt að fá stjórnvöld til viðræðna um aðgerðir í efnahagsmálum en talað fyrir daufum eyrum.  Eftir bankahrunið í byrjun október vildi ASÍ gefa ríkisstjórninni starfsfrið til að slökkva þá elda sem þá geisuðu.  Sú vinna var veik og handahófskennd og þeir sem báru ábyrgð á hruninu voru ekki látnir axla hana.  Í lok nóvember hvatti ASÍ til þess að gerðar yrðu umfangsmiklar breytingar innan ríkisstjórnar, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits til þess að endurnýja umboð og ímynd ríkisstjórnarinnar. Ekkert af þessu hefur verð hrint í framkvæmd.

Nú er þolinmæðin þrotin og miðstjórn ASÍ  sér ekki tilgang í að halda kjaraviðræðum áfram fyrr en ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum á Íslandi.  Til þess að ræða þessa afstöðu miðstjórnar hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ og einstakra deilda sem eiga aðild að landssamböndum innan ASÍ verið boðaðir til fundar á Grand hótel kl. 11 í fyrramálið.



Til baka


Fréttalisti


Aðildarskylda

Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...