Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. janúar 2009 14:27

Fjórðungur myndi leita sér að vinnu erlendis

Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Alþýðusambandið voru þeir sem eru í launaðri vinnu spurðir hvað væri líklegast að þeir tækju sér fyrir hendur ef viðkomandi missti vinnuna. 27% sögðust myndu leita sér að starfi í útlöndum. Iðnaðarmenn eru þar fjölmennir en einnig ungt fólk með háskólapróf. Fólk sem í dag starfar sem sérfræðingar og stjórnendur. Meirihluti þessara hópa myndi þó byrja á að leita sér að vinnu hérlendis. Sérfræðingar og verkafólk eru fjölmennustu hóparnir sem færu í nám og ungt fólk færi frekar í nám en þeir sem eldri eru.

Í þessari spurningu mátti nefna fleiri en einn svarmöguleika.

 

Þeir sem þegar hafa misst vinnuna voru spurðir hvort þeir væru að leita sér að vinnu á Íslandi, erlendis eða hvort viðkomandi ætlaði í nám. Útkoman er svipuð og hjá hinum sem enn eru í vinnu nema hvað hlutfall þeirra sem ætla í nám er hærra.

Capacent Gallup gerði könnunina fyrir ASÍ dagana 8.-18. desember. Úrtakið var 1500 manns og var svarhlutfallið 54,3%.



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...