Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
14. janúar 2009 15:24

Alþjóðahreyfing verkalýðsfélaga hvetur Alþjóðabankann og IMF að grípa til aðgerða gegn vaxandi atvinnuleysi

Sendinefndir 80 verkalýðssambanda víðsvegar að úr heiminum eru komnar til Washington til fundar við yfirmenn Alþjóðabankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins vegna lánsfjárkreppunnar og efnahagssamdráttarins í heiminum öllum.  Í þeim hremmingum er vaxandi atvinnuleysi mesta áhyggjuefniverkalýðshreyfingarinnar.„Við þurfum víðtækar aðgerðir af hendi ríkisstjórna og alþjóðlegra fjármálastofnanna til að halda hjólum atvinnulífsins gangandi og bjarga þannig störfum fólksins.  Aðeins þannig sköpum við grundvöll fyrir efnahagslegum stöðugleika á ný,“ segir Guy Ryder framkvæmdastjóri Alþjóðsambands verkalýðsfélaga (ITUC).Hann bætti við að alþjóðlegar fjármálastofnanir eins og IMF verði að kasta gjaldþrota hugmyndafræði og leggja allt kapp á að varðveita störf og skapa ný, bæði til að bregðast við núverandi vanda og eins til að byggja grunn að efnahagslegum stöðugleika í framtíðinni.

Sjá nánar hér.



Til baka


Fréttalisti


Dagvinnulaun

eru laun sem greidd eru fyrir vinnu...