Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
22. desember 2008 10:53

Verðbólgan 18,1% í desember

 

Verðbólga mældist 18,1% í desember samkvæmt nýjustu útreikningum Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Frá því í nóvembermánuði hefur verðlag hækkað um 1,52%. Verðhækkanir mælast nú líkt og undanfarna mánuði á all flestum vöruliðum vísitölunnar að bensíni og olíum undanskildu.

 

Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni nú hafa verðhækkanir á húsgögnum, heimilistækjum og húsbúnaði sem hækkaði um 4,4% á milli mánaða og efni til viðhalds á húsnæði sem hækkaði um 7,2% frá því í nóvember. Á síðustu 12 mánuðum hefur efni til viðhalds á húsnæði hækkað um tæp 45%.

 

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 2,1% frá fyrra mánuði en hefur frá sama tíma í fyrra hækkað um ríflega 30%.

 

Þá hækkaði verð á áfengi um 9,2% sem að hluta til má rekja til hækkunar á áfengisgjaldi.

Af öðrum liðum má nefna að ritföng, leikföng o.fl. hækka um 2,4% á milli mánaða, flugfargjöld til útlanda hækka um 14,6% og lyf og lækningavörur hækka um 7,1% frá því í nóvember.

 

Á móti hækkuninni nú vegur verðlækkun á bensíni og olíum sem lækka um 8,6% frá fyrra mánuði en hefðu lækkað enn meira ef ekki hefði til komið hækkun á olíugjaldi. Þá hækkar kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði um 0,5% bæði vegna áhrifa af lækkun markaðsverðs og lækkun vaxta. 

 

Veikt gengi krónunnar er enn að skila sér út í verðlag og hafa mikil áhrif á verðbólguna, en þar að auki gætir nú einnig áhrifa af gjaldskrárhækkunum opinberra aðila. Líkt og Alþýðusambandið og fleiri aðilar bentu á í liðinni viku þá hafa nýsamþykktar hækknair á áfengis- og olíugjaldi áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs og þar með áhrif til hækkunar á verðtryggðum skuldum heimilanna.

 

Áramótin eru jafnan tími endurskoðunnar á gjaldskám fyrirtækja og stofnanna. Brýnt er að ríkið, sveitarfélög og fyrirtæki kappkosti við að hækka ekki gjaldskrár sínar við þessar aðstæður þannig að koma megi böndum á verðbólguna hið allra fyrsta.

Til baka


Fréttalisti


Dráttarvextir

eru refsivextir sem innheimtir eru ef krafa...