Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
01. desember 2008 13:39

Ísland eftirbátur hinna Norðurlandanna

Norræna verkalýðshreyfingin sendir nú frá sér í annað sinn, sérstaka skýrslu um afdrif samþykkta Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) sem samþykktar hafa verið á þingum stofnunarinnar frá 1980. Auk þess að fjalla um afdrif einstakra samþykkta fjallar skýrslan um starfsemi þríhliðanefnda ILO á öllum Norðurlöndunum.

Skemmst er frá að segja, að öll Norðurlöndin hafa staðfest grundvallarsamþykktir ILO en Ísland stendur hinum Norðurlandaþjóðunum langt að baki þegar skoðuð er staðfesting annarra samþykkta. Alls eru 80 samþykktir ILO taldar vera virkar, af þessum 80 hefur Ísland staðfest 20 meðan Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa staðfest nærfellt allar.

Skýrsluna í heild sinni má sjá hér



Til baka


Fréttalisti


Jafnrétti

Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta...