28. maí 2008 16:22
Snörp aðlögun hagkerfisins er framundan og tveggja ára samdráttur í landsframleiðslu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá Hagdeildar ASÍ. Spáin gerir þó ráð fyrir því að í ár verði áfram ágætis hagvöxtur. Hagkerfið leitar síðan nýs jafnvægis þar sem krónan er veik, vaxtastig hátt og verðbólga mikil. Verðbólgan mældist tæp 12% í apríl og horfur eru á að hún aukist ennfrekar þegar líður á árið. Hún hjaðnar nokkuð undir lok ársins en verður þó mikil út spátímabilið. Eftir mjög gott atvinnuástand síðastliðin ár eru nú blikur eru á lofti og má búast við að atvinnuleysi vaxi hratt með haustinu.
Helstu niðurstöður hagspár
Snörp aðlögun hagkerfisins er framundan og tveggja ára samdráttur í landsframleiðslu. Í ár verður þó áfram ágætis hagvöxtur. Hagkerfið leitar nýs jafnvægis þar sem krónan er veik, vaxtastig hátt og verðbólga mikil.
Heimilin munu draga úr neyslu á næstu þremur árum. Ástæður eru minnkandi kaupmáttur, vaxandi greiðslubyrði lána og versnandi aðgengi að lánsfé.
Fjárfestingar dragast saman á næstu árum. Mestur verður samdrátturinn í fjárfestingum atvinnuveganna en einnig dregur verulega úr fjárfestingum í íbúðarhúsnæði. Fjárfestingar á vegum hins opinbera aukast hins vegar, einkum á yfirstandandi ári.
Innflutningur dregst saman á spátímanum samhliða minnkandi einkaneyslu og fjárfestingum. Útflutningur mun aftur á móti aukast á tímabilinu, vegna aukins álútflutnings. Á tímanum minnkar viðskiptahallinn heldur en verður þó áfram mikill.
Eftir mjög gott atvinnuástand síðastliðin ár eru nú blikur eru á lofti og má búast við að atvinnuleysi vaxi hratt með haustinu. Dregið hefur úr fjölgun starfa og víða hefur verið tilkynnt um uppsagnir. Enn eru ekki komin fram nein skýr merki um að erlendum starfsmönnum muni fækka.
Útlit er fyrir að forsendur nýgerðra kjarasamningana muni bresta þegar kemur að endurskoðun í febrúar á næsta ári. Líkur eru á að kaupmáttur launa og ráðstöfunartekna dragist saman á næstu árum.
Verðbólgan mældist tæp 12% nú í apríl og horfur eru á að hún aukast ennfrekar þegar líður á árið. Hún hjaðnar nokkuð undir lok ársins en verður þó mikil út spátímabilið.
Þrátt fyrir mikið peningalegt aðhald síðustu misserin eru stýrivextir Seðlabankans nú fyrst farnir að bíta. Ástæðan er þrengra aðgengi að erlendu lánsfé. Gera má ráð fyrir að stýrivextir verði áfram háir.
Óvissa ríkir um gengisþróun en hún ræðst m.a. af vaxtamun við löndin í kringum okkur og þróun á alþjóðafjármálamörkuðum. Gert er ráð fyrir að krónan verði veik allt tímabilið og gengisvísitalan verði á bilinu 143 – 156.

Vorskýrslu hagdeildar ASÍ má lesa í heild sinni hér.
Útdráttur á íslensku.
Samanfattning på svenska.
Summary in English.
Til baka